05janúar
Jæja, þá er víst komið að því, kappinn er að flytja til Reykjavíkur.
Er kominn með herbergiskytru í kópavogi, nánar tiltekið á Álfhólsvegi 2 a og um að gera að hafa samband og kíkka í kaffi og kleinur þegar maður verður búinn að koma sér fyrir.
En núna er ég að ganga frá þessu drasli sem ég þarf víst að hafa með mér, henda því öllu út í bíl og svona, og svo verður bara brennt af stað, í rólegheitunum þó, þar sem flughálka er um allt land og er ég nú ekki á besta bílnum til þess að keyra í þannig aðstæðum, né á nógu góðum dekkjum.
Annars er allt gott að frétta hérna meginn, hef sjaldan eða aldrei verið eins hress, og er tilbúinn að koma mér í form þarna í Reykjavík og fara að spila fótbolta aftur af einhverri alvöru.
En endilega þið sem búið í Reykjavík að vera í bandi og svona við mig, því það er aldrei að vita nema maður hafi einhvern smá hitting svona til að fagna því að maður sé loksins kominn í skóla aftur, og núna til að taka þetta að alvöru, en ekki til þess að vera fullur 24/7.
later;)